21. ágúst 2021 · Sigríður Júlía Bjarnadóttir

Smásaga eftir Sigríði Júlíu Bjarnadóttur

Hvað gerðist?

Maí, maí er góður mánuður. Skólinn að klárast þennan veturinn. Bara eitt sundpróf eftir.

Veturinn hafði reyndar verið svolítið spennandi, Gunnar sýndi mér áhuga, við vorum meira að segja kærustupar.
Hann sagði að ég væri svo heimsk að ég skildi ekki neitt.
Það er ekki rétt. Ég get alveg lesið og reiknað.
Hann er bara montrass.

Út um herbergisgluggann sé ég Reynitréð sem pabbi gróðursetti þegar ég fæddist, það hefur stækkað mikið alveg eins og ég.
Núna eru að myndast agnarlítil laufblöð, svo stækka þau og visna í haust og verða að jarðvegi.
Hring eftir hring.

Sundprófið var ekki eins skemmtilegt og oft áður. Ég var eitthvað svo þreytt, ég er að vísu soldið feitari en hinar stelpurnar, en hvað með það? Þær eru sko ekki vinkonur mínar, stríddu mér stundum.
Mamma sagði að betra væri að eiga eina góða vinkonu en margar vondar.
Erla var góð vinkona, en hún flutti í haust með foreldrum sínum út á land.

Ég er eitthvað svo þreytt, fer bara snemma að sofa í kvöld.
Það er svo gott að sofa í litla þakherberginu mínu í svona roki og rigningu. Hvinur í þakskegginu.
Mamma hafði sett hreint á rúmið mitt. Hún sagði að ég gæti alveg gert það sjálf. Hún væri ekki þjónustustúlka hérna.
En mikið er notalegt að finna lyktina af nýþvegna kodda og sængurverinu.

Hvað var þetta? Guð minn góður!!!
Verkirnir eru ólýsanlegir, ég hef aldrei fundið aðra eins verki.
Hvað er að gerast? Er ég að deyja? Get ég farið niður? Ég er svo þyrst.
Hafði ég pissað undir? Það hafði gerst þegar ég var fjögra ára!
Barnið skaust út í heiminn á nýþvegna lakið, svo fallegt og hávært.

Endir.